All content for Landspítali hlaðvarp is the property of Stefán Hrafn Hagalín and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala
“Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok. Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar brennandi áhuga á faginu en Anna hefur alltaf tekið nýjungum í starfi fagnandi, enda heyrum við sögur af bókaútgáfu og ráðgjafa-símalínu (sem stundum var misskilin um helgar).
Það má með sanni segja að Anna, sem er iðulega kölluð Anna Ljósa, sé ljósmóðir fram í fingurgóma og þykir ekkert sjálfsagðara en að hafa aðstöðu til mæðraverndar á eigin heimili eða að stökkva yfir til nágrannakonu til þess að taka á móti barni í sparikjól milli rétta. Anna hefur staðið vaktina á Landspítala frá 1994 ásamt því að sinna fjölskyldum á þeirra heimili (oftar en ekki í Hafnarfirði) og geta samstarfskonur sem og skjólstæðingar staðfest að það er aldrei lognmolla þegar Anna Ljósa er á vakt.
Landspítali hlaðvarp
Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala