All content for Samfélagið is the property of RÚV and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Síðustu vikur hafa hlustendur Samfélagsins heyrt pistla frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, og Lauru Sólveigu Leffort Scheefer, forseta Ungra umhverfissinna. Þær tóku þátt í COP-30, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Belem í Brasilíu og í pistlum sínum sögðu þær frá dvöl sinni í Belem sem og því sem bar hæst á ráðstefnunni, sem var heldur tíðindamikil í ár. Þær Þorgerður og Laura ætla að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og gera upp dvöl sína þar og fara nánar út í helstu atburði og niðurstöður COP-30. Við förum svo í okkar reglulegu heimsókn í Þjóðskjalasafnið og hittum þar Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð. Hún ætlar að segja okkur frá helgidagabrotum sem voru framin á 17. og 18. öld ásamt jóladagatali safnsins. En við byrjum á COP-30.
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is