All content for Samfélagið is the property of RÚV and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Heilsutengd markmið um áramót eru algeng. Til þess að markmiðin náist er gott að hafa í huga að fara rólega af stað, vera með raunhæfar væntingar um árangur og huga að skemmtanagildi hreyfingarinnar. Daníel Sæberg Hrólfsson, WorldFit-þjálfari og einkaþjálfari hjá World Class, kemur til okkar í byrjun þáttar með góðar ráðleggingar til þeirra sem ætla að taka heilsuna föstum tökum á nýja árinu. Við ætlum líka að fjalla um ljótar og fallegar nýbyggingar. Umræða um byggingar- og skipulagsmál er að þroskast og verða háværari, en stór hluti þeirrar umræðu snýr að því hvað allt er ljótt. Er eitthvað raunverulega til í því? Eða er þetta birtingarmynd nostalgíu eða fortíðarþrár? Þórhallur Bjarni Björnsson, skipulagsfræðinemi og talsmaður Arkítektúruppreisnarinnar, kíkir til okkar á eftir til að ræða þetta, sem og kosningu um fallegustu og ljótustu nýbyggingar ársins 2025. Konur eru mikilvægar nú á dögum sem leiðtogar, skrifar Ebba Margrét Magnúsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir í nýjasta hefti Læknablaðsins. Ebba Margrét segir heiminn þurfa sterka og mannlega kvenleiðtoga. Hún kíkir til okkar í lok þáttar og spjallar við okkur um leiðtoga heimsins nú í upphafi árs. Tónlist úr þættinum: Bleachers - Modern Girl Clairo - Juna BRÍET - Cowboy Killer
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is