All content for Samfélagið is the property of RÚV and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Reykur, Tilvera og áhrif Covid bólusetninga á krabbamein
Samfélagið
57 minutes 38 seconds
2 weeks ago
Reykur, Tilvera og áhrif Covid bólusetninga á krabbamein
Síðasta febrúar var verkefnið Reykur sett á laggirnar á vegum Matthildarsamtakanna – Reykur veitir skaðaminnkandi þjónustu fyrir fólk sem reykir ópíóíða og örvandi vímuefni og hefur – síðustu átta mánuði – náð til fólks sem hefur áður ekki fengið viðeigandi þjónustu eða aðstoð. Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun og forormaður mattmildarsamtakanna Reyks, sest hjá okkur í upphafi þáttar og veitir okkur innsýn inn í starfsemina. Dagana 1.–9. nóvember 2025 heldur Tilvera – samtök um ófrjósemi – upp á Vitundarvakningarviku um ófrjósemi. Markmið vikunnar er að efla fræðslu og skilning á ófrjósemi, brjóta niður þögn og fordóma og minna á að þekking á líkamanum er ekki lúxus, heldur lífsnauðsyn. Sigríður Auðunsdóttir og Anna Þorsteinsdóttir frá Tilveru settust niður með okkur og sögðu okkur frá samtökunum og baráttunni við ófrjósemi. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, ætlar að segja okkur frá mögulegum áhrifum Covid bólusetningar á krabbameinsmeðferðir. en byrjum á einu lagi. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttarins: Rogers, Maggie - Don't Forget Me. HJÁLMAR - Blómin í brekkunni. Bryan, Zach - 28.
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is