All content for Samfélagið is the property of RÚV and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Tækniframfaratrú, vara ársins og uppnám í bresku konungsfjölskyldunni
Samfélagið
57 minutes 33 seconds
1 week ago
Tækniframfaratrú, vara ársins og uppnám í bresku konungsfjölskyldunni
Fjallahjólið Elja var nýverið valið vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Hjólið er uppfinning frá fyrirtækinu Lauf Cycles – og við fáum til okkar í dag Berg Benediktsson, verkfræðing og starfsmann fyrirtækisins – sem ætlar að segja okkur frá þessu hjóli og fyrirtækinu, sem hóf starfsemi sína í bílskúr í Grafarvogi. Andrés fyrrverandi prins verður hér eftir þekktur sem Andrew Mountbatten Windsor eftir ákvörðun Karls Bretakonungs um að svipta bróður sinn tign, titlum og heiðursnafnbótum. Í yfirlýsingu, sem birtist í síðustu viku, segist Andrew hafa tekið ákvörðunina í samráði við Karl Bretakonung, sína nánustu fjölskyldu og stórfjölskylduna, vegna áframhaldandi ásakana sem dragi athyglina frá vinnu konungsins og konungsfjölskyldunnar. Guðný Ósk Laxdal, sérfræðingur í konungsfjölskyldum, ætlar að leiða okkur í gegnum stöðu bresku konungsfjölskyldunnar. Og í lok þáttar fáum við til okkar Bergsvein Bergsveinsson rithöfund til að ræða tækniframfaratrú, samfélagsmiðla og gervigreind – viðfangsefni sem hann fjallaði um á málþingi í Reykjavíkurakademíunni í síðustu viku. — en við byrjum á vöru ársins. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttarins: Nick Drake - Pink moon. Prins Póló - Fallegi smiðurinn. Bríet - Until then
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is