Í kringum 1960 var rafmagn lagt til sveitabæja innst í Eyjafirði sem hluti af markvissri áætlun stjórnvalda um að rafvæða landið. Sölvadal var þó sleppt. Hann er einn af dölunum innst í firðinum og þar var búið á þremur bæjum. En hvaða afleiðingar átti sú ákvörðun eftir að hafa í för með sér? Fjallað er um byggðasögu Sölvadals og rætt við fólk sem þekkir af eigin raun hvernig er að búa á svæði sem tengdist aldrei rafveitukerfi landsins.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Við höldum áfram að horfa til baka og fáum loks að vita hvaða menn á Akureyri keyptu á sínum tíma vatnsréttindin í Núpánni. En fyrst heyrum við í einu af síðustu börnunum sem ólst upp í Sölvadal.
Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Valgerður H. Bjarnadóttir og Njáll Kristjánsson.
Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.