Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Sports
Society & Culture
History
Fiction
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts125/v4/0b/fa/69/0bfa6951-4f8e-2100-cf17-bdbf83788ae0/mza_6459191841231406830.jpg/600x600bb.jpg
Flugvarpið
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
140 episodes
1 week ago
Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru: Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.
Show more...
News
RSS
All content for Flugvarpið is the property of Jóhannes Bjarni Guðmundsson and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru: Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.
Show more...
News
Episodes (20/140)
Flugvarpið
#140 Gamlársdagur á Reykjavíkurflugvelli – spjallað við nokkra flugmenn á rölti um Fluggarða á síðasta degi ársins 2025.
Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru: Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.
Show more...
1 week ago
28 minutes 44 seconds

Flugvarpið
#139 – Farþegum um KEF fækkar annað árið í röð – tengifarþegum fækkar mest – forstjóri ISAVIA vill halda dampi í gegnum lægðina og vera tilbúinn þegar farþegum fjölgar á ný - Sveinbjörn Indriðason
Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA um reksturinn á Keflavíkurflugvelli í tilefni af nýrri farþegaspá fyrir árið 2026. Spáin gerir ráð fyrir töluverðri fækkun farþega um völlinn og munar þar mestu um 15% færri tengifarþega. Sveinbjörn segir að þessi fækkun muni hægja á framkvæmdum á vellinum, tekjurnar minnki á sama tíma og kostnaður hækkar sem hefur áhrif á afkomuna. Hann leggur samt áherslu á að ISAVIA horfi í gegnum tímabundna niðursveiflu, haldi uppi góðri þjónustu og allt verði tilbúið til að grípa tækifærin þegar umferð og farþegum fjölgar á ný um tengimiðstöðina. Forstjórinn ræðir einnig málefni Reykjavíkurflugvallar, afturvirka reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play, samningamál við flugumferðarstjóra og margt fleira. Áhugavert spjall við forstjóra ISAVIA- fyrirtækis sem er í lykilhlutverki í flugmálum okkar Íslendinga.
Show more...
2 weeks ago
1 hour 21 minutes 57 seconds

Flugvarpið
#138 – Icelandair auglýsir eftir flugmönnum – margar umsóknir nú þegar og félagið mun geta valið úr hópi reynslumikilla flugmanna - Linda Gunnarsdóttir
Rætt er við Lindu Gunnarsdóttur yfirflugstjóra Icelandair um fyrirhugaðar ráðningar flugmanna í millilandaflug félagsins. Á annað hundrað flugmenn misstu vinnuna þegar Play fór í þrot í haust og nú auglýsir Icelandair eftir fólki með reynslu á þotu. En hvað á að ráða marga og hvaða vélum eiga þeir að fljúga? Linda svarar þessum spurningum og fleirum í þættinum þar sem farið er stuttlega yfir ferlið framundan, inntökuprófin, þjálfanir, "cadet" prógrammið og fleira.
Show more...
3 weeks ago
23 minutes 23 seconds

Flugvarpið
#137 – Fékk fyrsta flugmannsstarfið á þotu hjá Icelandair, en valdi að snúa aftur heim og flýgur nú hjá KLM út frá Schiphol. Spjallað um flugmannsstarfið hér og þar - Lennart Keizer
Rætt er við Lennart Keizer flugmann á Boeing 737 hjá KLM, en hann byrjaði sinn flugmannsferil hjá Icelandair árið 2017 þegar Icelandair réð nokkurn hóp erlendra flugmanna til starfa hjá félaginu. Lennart flutti aftur til heimalandsins í fyrra þegar honum bauðst vinna hjá KLM og er í dag með heimahöfn á Schiphol í Amsterdam, þar sem viðtalið var tekið upp. Lennart lærði flugvirkjun og verkfræði og vann ýmist störf tengd fluginu áður en hann lét af því verða að læra til atvinnuflugmanns. Hann var kominn á fertugsaldur þegar honum bauðst flugmannsstaða hjá Icelandair á Boeing 757 fyrir um 7 árum síðan. Hollendingurinn segir hér frá upplifuninni að koma til Íslands til að vinna sem flugmaður. Spjallað er um muninn á flugrekstri KLM og Icelandair, kosti og galla og af hverju Lennart valdi að snúa aftur heim til Hollands á þessum tímapunkti á ferlinum. Upptakan fór fram í Amsterdam í byrjun desember 2025.
Show more...
3 weeks ago
1 hour 13 minutes 46 seconds

Flugvarpið
#136 – Það gerist all mannlegt um borð í flugvél og farþegarnir ekki alltaf á leið í skemmtiferð – þakklát fyrir draumastarfið sem flugfreyja í nær hálfa öld - Björg Jónasdóttir
Rætt er við Björgu Jónasdóttur fyrrverandi flugfreyju hjá Icelandair, Flugleiðum og þar áður Loftleiðum um flugfreyjustarfið og ýmsa atburði á hennar langa og fjölbreytta flugferli. Björg hóf störf árið 1972 þegar hún var aðeins tvítug að aldri. Hún segir meðal annars frá fyrstu flugferðunum á DC-8, lærdómsferlinu að vinna í pílagrímaflugi á sjöunda áratugnum, leiguflugi á ýmsum fáförnum og framandi slóðum ásamt mörgu fleiru sem á daga hana dreif í starfinu vítt og breitt um heiminn. Björg hóf ferilinn árið 1972 og óhætt að segja að miklar breytingar hafi átt sér stað í starfsumhverfi flugfreyjunnar á árunum og áratugunum þar á eftir, en um leið eru aðrir þættir sem hafa haldist óbreyttir.
Show more...
1 month ago
1 hour 54 minutes 11 seconds

Flugvarpið
#135 - Vinir Gunnfaxa – landssöfnun til að koma þristinum Gunnfaxa á samgöngusafnið á Skógum – Snorri og Jón Karl Snorrasynir
Rætt er við bræðurna Snorra og Jón Karl Snorrasyni um landssöfnun sem nú er í gangi til að bjarga flugvélaflaki þristsins Gunnafaxa af Sólheimasandi. Þeir bræður hafa á undanförnum vikum unnið að verkefninu ásamt Ólafi Eggertssyni bónda á Þorvaldseyri. Gunnfaxi var í eigu Þristavinafélagsins og hafði verið í geymslu í skýli á Keflavíkurflugvelli um árabil. Eigendafélag Sólheimasands keypti vélina fyrr á þessu ári til að koma í stað þeirrar sem brotlenti á Sandinum fyrir rúmlega hálfri öld og hefur verið mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þeir Snorri og Jón Karl segjast hóflega bjartsýnir á að takist að safna nægu fé til að koma vélinni í skjól á Skógum en biðla til áhugasamra, bæði einstaklinga og fyrirtækja að taka þátt í verkefninu. Hægt er að leggja málefninu lið með því að leggja inn á söfnunarreikning Vina Gunnfaxa: kt: 621025-1710 og reikningsnúmer: 0515-26-989860.
Show more...
1 month ago
25 minutes 57 seconds

Flugvarpið
#134 – Dýrkeyptur metnaður Evrópu í loftlagsmálum – Ísland ber langhæsta kostnað allra landa í Evrópu sem kemur illa niður á íslenskum flugrekstri - Heiða Njóla Guðbrandsdóttir
Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur verkfræðing og forstöðumann hjá Icelandair um þann gríðarlega kostnað sem fellur á íslensk flugfélög í formi umhverfisskatta- og gjalda, en hún er sérfræðingur í margs konar kerfum sem sett hafa verið á flugfélögin í nafni loftlagsmála. Heiða Njóla útskýrir í þættinum hvernig ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir virkar og hver þróunin hefur verið og fer yfir plönin framundan. Annar vaxandi kostnaðarliður í rekstri flugfélaga er SAF eða sjálfbært eldsneyti og hefur ESB sett reglur um að notkun á því skuli margfaldast á næstu árum. Þá er einnig til kerfi á vegum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem kallast CORSIA og heldur utan um losun gróðurhúsalofttegunda í alþjóðaflugi, svo eitthvað sé nefnt. Öll þessi kerfi þýða marga milljarða króna kostnað á ári fyrir félag eins og Icelandair og útfærslan þýðir að Ísland ber langhæstu kostnaðarbyrðar allra landa Evrópu í formi loftlagsskatta. Núverandi plön og regluverk gerir ráð fyrir að þessi kostnaður muni bara hækka á næstu árum og það verulega. Áhugavert og upplýsandi viðtal um stöðu flugsins í þessu samhengi.
Show more...
1 month ago
56 minutes 22 seconds

Flugvarpið
#133 – Hagur allra að rekstur Icelandair verði arðbær aftur segir flugmaðurinn og fyrrum forstjóri Play sem nú er framkvæmdastjóri flugrekstrar Icelandair – Arnar Már Magnússon
Rætt er við Arnar Má Magnússon nýjan framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Icelandair, en hann tók nýlega við stöðunni samhliða skipulagsbreytingum sem gerðar voru hjá félaginu til að einfalda yfirstjórnina. Arnar Már er atvinnuflugmaður og hefur að auki langa reynslu af flugrekstri. Hann var forstjóri Play og einn af stofnendum þess, var yfirflugstjóri og flugrekstrarstjóri hjá WOW og þar áður starfaði hann sem flugstjóri hjá flugfélaginu RyanAir. Arnar fer í þættinum stuttlega yfir sinn feril, aðdragandann að stofnun Play og ekki síst um stöðu Icelandair í dag og stór verkefni sem þar blasa við til að koma félaginu í sjálfbæran rekstur aftur.
Show more...
1 month ago
1 hour 33 minutes 3 seconds

Flugvarpið
#132 – Alvarleg flugatvik geta verið undanfari slysa – rætt um flugslysarannsóknir og rýnt í alvarlegt atvik yfir Íslandi sem draga má mikinn lærdóm af - Ragnar Guðmundsson
Rætt er við Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðing og rannsakanda hjá flugsviði Rannsóknarnefndar samgönguslysa um fjölgun alvarlegra flugatvika á síðustu árum. Þá hefur fjölgun alvarlegra flugumferðaratvika á síðustu misserum orðið tilefni til sérstakrar umræðu á fundum RNSA og Samgöngustofu og ýmsar tillögur í öryggisátt eru þegar komnar til framkvæmda. Ragnar hefur starfað í yfir 25 ár í fluginu hérlendis og þar af í 21 ár við rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika. Hann miðlar hér stuttlega af sinni áratuga reynslu og rýnt er sérstaklega í skýrslu RNSA um alvarlegt flugatvik sem varð á breiðþotu yfir Íslandi í febrúar 2023. Draga má mikinn lærdóm af því sem þar gerðist og atvikið hefur þegar stuðlað að ýmsum breytingum til hins betra.
Show more...
1 month ago
58 minutes 37 seconds

Flugvarpið
#131 – Getur vont skap valdið flugslysum? Spjall um andlega heilsu og flugöryggi - Jóhann Pétur Wium Magnússon
Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið settar um eftirlit og flugrekendum einnig gert að hafa úrræði til staðar fyrir sitt starfsfólk. Jóhann Pétur segir að almennt sé fólk að vakna til vitundar um andlega heilsu og umræðan sé af hinu góða því hún vinni gegn fordómum.
Show more...
2 months ago
33 minutes 57 seconds

Flugvarpið
#130 – Nauðsynlegt að snúa við ósjálfbærum rekstri Icelandair – vonbrigði eftir Q3 og útlit fyrir tap af árinu í heild - Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2025. Þrátt fyrir auknar tekjur og ýmis jákvæð teikn í rekstrinum olli rekstrarniðurstaðan vonbrigðum og spáð er tapi á rekstri félagsins í árslok. Eftir 8 ár af ósjálfbærum rekstri segir forstjórinn nauðsynlegt að snúa rekstrinum við eigi síðar en á næsta ári. Hann segir nauðsynlegt að félagið verði samkeppnisfært og gagnrýnir misvitur gjöld í nafni umhverfisins sem virki ekki og valda félaginu gríðarlegum kostnaði. Bogi varar líka við auknum sköttum á flugrekstur og ferðaþjónustuna og gagnrýnir harðlega vinnubrögð innviðaráðherra nýlega þegar sett var reglugerð eftirá í kjölfar falls Play. Ýmis önnur viðfangsefni ber á góma í spjallinu við Boga eins og breytingar á flotamálum, kjarasamninga og áframhaldandi harða samkeppni við stærstu flugfélög Evrópu og Norður-Ameríku.
Show more...
2 months ago
57 minutes 46 seconds

Flugvarpið
#129 - Flugvarpið 5 ára - upptaka frá afmælisviðburði í Sykursalnum 14. október 2025.
Hér er á ferðinni upptaka frá afmælisviðburði Flugvarpsins í tilefni af 5 ára afmæli hlaðvarps Íslendinga um flugmál. Ljúfir tónar jasskvintetts Jóns Harðar flugstjóra tóku á móti gestum og á sviðinu var tekið hressilegt spjall um flugmálin við nokkra frábæra viðmælendur og sögur sagðar. Fyrst stigu á sviðið tveir menn sem hafa með orðum og gerðum verið mikið í umræðunni síðustu vikurnar, þeir Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA og Eyjólfur Ármannsson ráðherra flugmála. Að því búnu ræddu þau Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins um ógnir og tækfæri í flugheiminum. Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta var svo aðalgestur kvöldsins og fór yfir ótrúlega öfluga starfsemi félagsins víða um heim, umbreytingu félagsins á síðustu árum og hvernig framtíðarhorfurnar blasa við honum. Að endingu steig Jóhann Skírnisson fyrrum flugstjóri og "bush pilot" á svið og sagði nokkrar skemmtisögur.
Show more...
2 months ago
2 hours 14 minutes 33 seconds

Flugvarpið
#128 – PLAY á Íslandi gjaldþrota – tilfærslan til Möltu og breytt staða á flugmarkaðnum - Hans Jørgen Elnæs
Rætt er við norska flugreinandann Hans Jørgen Elnæs um gjaldþrot Play og síbreytilega stöðu á flugmarkaðnum í Evrópu. Hann segir það hafa komið á óvart að Play hafi farið í þrot svo skömmu eftir endurfjármögnun íslenska félagsins. Markaður fyrir Airbus flugvélar af þeirri gerð sem Play notaði er góður að mati Hans Jørgen og verður forvitnilegt að sjá hvaða leiðir eru færar fyrir leigusala vélanna í framhaldinu. Hann ræðir líka stuttlega um harða samkeppni á norður Atlantshafinu og hvernig það hafi gert félagi eins og Play erfitt fyrir.
Show more...
3 months ago
38 minutes 51 seconds

Flugvarpið
#127 –Flugfélagið Bláfugl gjaldþrota eftir margra ára dómsmál – átakamálin sum svipuð og í umræðunni núna um fall PLAY. Karl Ó. Karlsson lögmaður fer yfir ýmsa anga í Bláfuglsmálinu.
Rætt er við Karl Ó. Karlsson lögmann FÍA og sérfræðing í vinnurétti um áralangar deilur Bláfugls og Félags íslenskra atvinnuflugmanna fyrir dómstólum, eftir að 11 flugmönnum Bláfugls var sagt upp störfum og verktakaflugmenn ráðnir í þeirra stað á mun lægri kjörum. Bláfugl skilaði inn íslensku flugrekstrarleyfi árið 2024 og var lýst gjaldþrota fyrr á þessu ári. Karl segir frá stöðu málsins núna og hvernig umgengni Bláfugls um kjarasamninga hafi umturnast eftir að Avia Solutions eignaðist félagið. Fyrrum flugmenn félagsins höfðu fengið dæmdar bætur vegna ólögmætra uppsagna og nú hefur þeim kröfum verið lýst í þrotabúið. Karl reifar málið frá ýmsum hliðum og ræðir um misjafnt ráðningarsamband flugmanna við flugrekendur. Viðtalið var tekið upp skömmu fyrir fall flugfélagsins Play en átakamálin í Bláfuglsdeilunni hafa nokkra skírskotun til umræðuefna núna í tengslum við gjaldþrot Play.
Show more...
3 months ago
1 hour 1 minute 19 seconds

Flugvarpið
#126 – Nauðlendingin á Sólheimasandi enn í fersku minni, segir flugmaðurinn Gregory Fletcher. Ótrúlegt afrek að svífa ísaðri Douglas vélinni langa leið og lenda giftusamlega á sandinum.
Rætt er við Gregory Fletcher flugmanninn sem nauðlenti Douglas C-117D flugvél bandaríska sjóhersins á Sólheimasandi í nóvember 1973. Fletcher sótti Ísland heim nýverið og fór þá á staðinn aftur í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Af því tilefni sló Flugvarpið á þráðinn til hans, til að heyra hans sögu af þessu einstaka afreki þar sem Douglas vélinni var svifið úr erfiðum veðurskilyrðum yfir Vatnajökli og alla leið niður á Sólheimasand þar sem tókst að magalenda vélinni án þess að nokkrum þeirra sjö sem um borð voru yrði meint af.
Show more...
3 months ago
49 minutes 33 seconds

Flugvarpið
#125 – Íslenskt hugvit í þróun nýrra tæknilausna á flugvöllum – bylting í nýrri hönnun flugbrautarljósa - Velocity Airport Solutions - Frosti Heimisson
Rætt er við Frosta Heimisson eiganda og framkvæmdastjóra Velocity Airport Solutions sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í að hanna ljósabúnað fyrir flugvelli. Frosti á sinn bakgrunn í fluginu hérlendis, starfaði um tíma hjá ISAVIA og TERN og hefur á síðustu árum náð að hasla sér völl í fremstu röð þeirra sem geta boðið nýstárlegar lausnir fyrir margs konar tæknibúnað á flugvöllum. Fyrirtæki hans mun í október n.k. sýna í fyrsta sinn nýja byltingarkennda hönnun á brautarljósum fyrir flugvelli á alþjóðlegri sýningu í Munchen og Frosti hefur fulla trú á að sú framleiðsla færi fyrirtæki hans í fremstu röð framleiðanda fyrir flugbrautarljós í heiminum innan fárra ára. Frosti er búsettur í Svíþjóð en kíkti í spjall í Flugvarpið þegar hann var á landinu nýlega.
Show more...
3 months ago
1 hour 38 minutes 34 seconds

Flugvarpið
#124 - Þjálfunaraðstaða á heimsmælikvarða – nýr Airbus 320 flughermir kominn í gagnið í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði – Ásgeir Bjarni Lárusson
Rætt er við Ásgeir Bjarna Lárusson framkvæmdastjóra CAE Icelandair training í Hafnarfirði um breytingar á starfseminni í tengslum við nýjan flughermi af gerðinni Airbus 320. Nýi hermirinn hefur nú hlotið alla formlega vottun frá eftirlitsaðilum og er tilbúinn til notkunar. Ásgeir Bjarni fer yfir þetta ferli og segir frá öflugri starfsemi í þjálfunarsetrinu sem hann hefur stýrt síðustu árin, en hann hefur áralanga reynslu í ýmsum störfum innan Icelandair.
Show more...
4 months ago
47 minutes 25 seconds

Flugvarpið
#123 – Styrkur KEF að njóta velvildar nærsamfélagsins - áskorun að taka við síauknum fjölda farþega og samtímis að bæta þjónustuna - Anna Björk Bjarnadóttir
Rætt er við Önnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar ISAVIA á Keflavíkurflugvelli en undir hennar svið falla mörg fjölbreytt verkefni á flugvellinum. Má þar nefna hreinsun og viðhald flugbrauta, turninn í Keflavík, öryggisleit, flugvernd og margs konar þjónusta við farþega. Anna Björk fer í þættinum vítt og breitt yfir verkefnin í Keflavík og hvernig ISAVIA hefur breytt sinni nálgun á síðustu árum í allri þjónustu við flugfélögin og farþega, en á sama tíma að tekist á við áskoranir sem fylgja stöðugum vexti í flugumferð um völlinn.
Show more...
4 months ago
1 hour 8 minutes 58 seconds

Flugvarpið
#122 – Oft erfið aðkoma að slysstað þar sem vinir manns höfðu farist - brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi– Skúli Jón Sigurðarson
Í þættinum er rætt við Skúla Jón Sigurðarson sem var brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi um áratuga skeið. Hann vann ötullega að flugöryggismálum í gegnum störf sín hjá Flugmálastjórn Íslands þar sem hann hóf störf árið 1965 og tók síðar þátt í að setja á fót Rannsóknarnefnd flugslysa. Í um 35 ár vann Skúli Jón fórnfúst starf í að rannsaka orsakir næstum allra flugslysa sem urðu hérlendis og naut alla tíð mikillar virðingar fyrir störf sín. Skúli Jón fer stuttlega í þættinum yfir sinn feril og segir meðal annars frá áhugaverðum og erfiðum slysum þar sem hann kom að og lýsir um leið nokkrum samferðamönnum sínum í störfum hjá Flugmálastjórn eins og Agnari Kofoed-Hansen og Sigurði Jónssyni, sem ætíð var kallaður Siggi flug.
Show more...
4 months ago
59 minutes 36 seconds

Flugvarpið
#121 – Ísland hefur gefið mér allt segir Jose flugstjóri hjá Atlanta sem kom frá Hondúras til Íslands og lærði flug – Jose Alvarado
Rætt er við Jose Alvarado flugstjóra hjá Air Atlanta í þessum þætti, en hann á stómerkilega sögu að baki og hefur á sinni starfævi unnið fyrir fjölda flugfélaga um allan heim og einnig fyrir öll stærstu íslensku flugfélögin, Icelandair, WOW, Play og Air Atlanta. Jose segir frá uppruna sínum og fjölskylduaðstæðum í Hondúras þaðan sem hann flutti ungur að árum ásamt íslenskri kærustu og saman fengu þau vinnu hjá Air Atlanta sem flugfreyjur á meðan Jose steig sín fyrstu skref í flugnáminu. Jose og faðir hans höfðu misjafna sýn á framtíðina og faðir hans sá fyrir sér að sonurinn tæki við rekstri fjölskyldufyrirtækisins, þannig að eftir að Jose hleypti heimdraganum var enga hjálp að fá úr þeim ranni. Jose lét samt ekkert stoppa sig í að láta drauminn um að verða flugmaður verða að veruleika. Hann lærði til flugmanns hjá Flugskóla Helga Jónssonar og segir í þættinum frá ýmsum merkilegum og áhugaverðum atburðum á sínum flugmannsferli.
Show more...
4 months ago
1 hour 43 minutes 31 seconds

Flugvarpið
Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru: Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.