Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
History
Sports
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts125/v4/28/fb/99/28fb99dd-85cf-8a18-0ecb-059de7ff6d66/mza_17344573643548173012.jpg/600x600bb.jpg
Óli Björn - Alltaf til hægri
olibjorn
100 episodes
4 days ago
Show more...
Politics
News
RSS
All content for Óli Björn - Alltaf til hægri is the property of olibjorn and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Show more...
Politics
News
Episodes (20/100)
Óli Björn - Alltaf til hægri
Harðstjóri fjarlægður - óvissa og vonir
Óvissan um hvort lýðræði komist aftur á í Venesúela er mikil þótt vonir almennings hafi vaknað eftir handtökuna á Mudoro. Valdakerfi sósíalista stendur óbreytt. Varaforsetinn, Delcy Rodríguez, hefur tekið við og hún er sannfærður sósíalisti og harður andstæðingur Vesturlanda og Bandaríkjanna sérstaklega. Rodríguez hefur verið í innsta hring valdakerfis sem byggt var upp á valdatíma Hugo Chávez og fest í sessi undir stjórn Nicolás Maduros. Hún er þekkt fyrir að fylgja harðlínu pólitík án málamiðlana. Hún er táknmynd valdhafa sem stendur tryggan vörð um valdakerfi af hugmyndafræðilegri tryggð og andstöðu við vestræn gildi.  
Show more...
4 days ago
14 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Ríkisútvarpið fest í setti
Hafi einhver borið þá von í brjósti að spilin á íslenskum fjölmiðlamarkaði yrðu raunverulega stokkuð upp með sérstakri aðgerðaráætlun menningarmálaráðherra, hefur sá hinn sami orðið fyrir miklum vonbrigðum. Tillögur ráðherra undir hatti aðgerðaráætlunar í málefnum fjölmiðla, sem ríkisstjórnin hefur gert að sínum, taka mið af því að fyrst skuli staðið vörð um Ríkisútvarpið og síðan reynt að styðja við sjálfstæða fjölmiðla en þá aðeins með því að gera þá enn háðari ríkisvaldinu en þeir eru þegar. Og ekki nóg með það: Frjálsir fjölmiðlar verða beint háðir Ríkisútvarpinu. Verði tillögurnar að veruleika verður staða Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði tryggð um ókomin ár og tal um sjálfstæða og frjálsa fjölmiðla verður æ ótrúverðugara. Ekki er efast um að baki tillögum menningarmálaráðherra búi raunverulegur vilji til að tryggja betur rekstrargrunn sjálfstæðra fjölmiðla. Vandi hans, eins og raunar allra stjórnarþingmanna og a.m.k. hluta þingmanna stjórnarandstöðunnar, er sú einlæga sannfæring að íslenska þjóðin komist ekki af án ríkisrekins fjölmiðlafyrirtækis.
Show more...
1 week ago
21 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Þyngri byrðar vinstri stjórnar
Fjárlög komandi árs eru fyrstu fjárlög vinstri stjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins. Á grunn þeirra birtist pólitísk stefna stjórnarinnar: Aðalverkfæri ríkisstjórnarinnar er ekki sleggjan, sem Kristrún ætlaði að nota, heldur aukin skattheimta til að standa undir gríðarlegri aukningu ríkisútgjalda. Og aukin ríkisútgjöld eru ekki vegna óvæntra áfalla, stríðs í Evrópu, náttúruhamfara eða farsóttar. Aukin útgjöld eru einfaldlega kjarninn í hugmyndafræði þeirra flokka sem mynda ríkisstjórnina.
Show more...
3 weeks ago
10 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Leitin að nýjum og nýjum málstað
Hægt er að draga sögu vestrænna sósíalista frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar saman í eina setningu: Stöðug og endurtekin leit að nýjum málstað í baráttunni gegn gildum vestrænna samfélaga og kapítalisma – markaðshyggju. Allar hugmyndir, hvert verkefni, hver krossferð snýst í grunninn um eitt og hið sama – djúpa tortryggni á frjálsu framtaki, frjálsum markaði og baráttu gegn þjóðskipulagi sem hefur gert mannkyni kleift að brjótast úr örbyrgð fátæktar til velmegunar. Hugmyndabarátta róttæklinga byggir á reiði, tortryggni, öfund og fyrirlitningu á velgengni sjálfstæðra einstaklinga. Til að viðhalda reiðinni verður stöðugt að finna nýjan málstað til að berjast fyrir.
Show more...
4 weeks ago
13 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk
Það væri hægt að sækja í orðakistu forseta Alþingis til að lýsa síðustu viku fyrir ríkisstjórnarflokkana. Djöfulsins, helvítis, andskotans. Þingvikan – frá mánudeginum 1. desember til föstudagsins 5. desember, var ekki sérlega góð fyrir ríkisstjórnarflokkana – var raunar í flestu afleit. Og það er greinilegt að þráðurinn er stuttur í stjórnarliðinu enda flestum ljóst að ráðherrar hafa ekki haldið sérlega vel að málum. Á föstudag gerðu þingmenn minnihlutans alvarlegar athugasemdir við vinnubörgð innviðaráðherra við gerð samgönguáætlunar. Þegar umræður um fundarstjórn forseta höfðu staðið í um 20 mínútur ákvað þingforseti að gera hlé á þingfundi. Á leið sinni úr forsetastólnum heyrðist Þórunn Sveinbjarnardóttir segja: „ „Ég er komin með nóg. Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk.“ Framganga Þórunnar sýnir að ekki er hægt að treysta dómgreind hennar. Hún býr heldur ekki yfir þeirri yfirvegun sem forseti á hverjum tíma verður á búa yfir.
Show more...
1 month ago
17 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Gíslar í haldi Ingu og Flokks fólksins
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur ákveðið á víkja farsælum og vinsælum skólameistara úr starfi. Þegar forsaga málsins er höfð í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að baki ákvörðun ráðherrans sé hefndaraðgerð  – misnotkun á pólitísku valdi til að koma þeim frá sem er ráðherra og félögum hans í Flokki fólksins ekki þóknanlegur. Það má hafa nokkra samúð með forsætisráðherra sem ítrekað kemst í þá stöðu að þurfa að verja verk ráðherra sem misbeita valdi sínu og virðast ekki hafa burði til að gegna ráðherraembættum þannig að sæmilegur sómi sé að. En spurningin er hversu lengi forsætisráðherra ætlar að sætta sig við framgöngu ráðherra Flokks fólksins og misbeitingu valds, til þess eins að tryggja líf ríkisstjórnarinnar og eigin stól í forsætisráðuneytinu. Kannski eru þolmörkin óendanleg þegar kemur að því að verja ráðherrastólana. Það er nöturlegt hlutskipti fyrir Samfylkinguna og Viðreisn, fyrir Kristrúnu og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, að vera pólitískir gíslar Ingu Sælands og Flokks fólksins.
Show more...
1 month ago
23 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Grafið undan EES með grófu broti
Ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að leggja verndartolla á kísilmálm frá Íslandi og Noregi markar þáttaskil í samskiptum EES-ríkjanna. Þrátt fyrir áratugalangt samstarf og aðild Noregs og Íslands að innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn var hvorugt landið undanþegið tollunum sem eru undir hatti svokallaðra verndartolla. Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, gagnrýndi ákvörðunina harðlega í viðtali við Morgunblaðið. Hann segir verndartollana gróft brot á EES-samningnum. EES-samningurinn er án nokkurs efa einn mikilvægasti alþjóðasamningur sem Ísland hefur gert. Við Íslendingar lifum á alþjóðaviðskiptum – lífskjör okkar byggjast á greiðum aðgangi að erlendum mörkuðum. Þegar Evrópusambandið tekur einhliða ákvörðun um að útiloka samstarfsríki og gengur gegn grunnhugsun samningsins ætti öllum að vera ljóst að undirstöður EES-samstarfsins eru ekki jafn sterkar og við höfum talið okkur trú um. Og það þjónar ekki hagsmunum okkar að gera lítið úr málinu og tala um hliðarspor, eins og forsætisráðherra gerir eða gefa til kynna að lausnin liggi í því að Ísland gangi inn í Evrópusambandið, líkt og utanríkisráðherra lætur liggja að. En auðvitað kemur það ekki nokkrum manni á óvart að þegar glíma þarf við vandamál eða leysa verkefni sé lausn Viðreisnar alltaf það sama: Evrópusambandsaðild.
Show more...
1 month ago
19 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
BBC í krísu - en hvað með RÚV
Breska ríkisútvarpið – BBC er í djúpri kreppu, eftir rökstuddar ásakanir um hlutdrægni, pólitískan rétttrúnað og fréttafalsanir hafa komið fram. Orðstír fréttastofu BBC, sem eitt sitt var talin fyrirmynd annarra fjölmiðla um vönduð vinnubrögð, er í húfi enda illa hægt að treysta lengur að það sem fréttamenn breska ríkisútvarpsins bera á borð sé byggt á staðreyndum og upplýsingaöflun og hlutlausum greiningum. Þrátt fyrir göfugt markmið hefur starfsemi BBC orðið sífellt umdeildari á síðustu árum og uppljóstrun um hreina fölsun fréttamanna í fréttaskýringaþættinum Panorama – sem er flaggskip rannsóknarblaðamennsku ríkismiðilsins, er ein alvarlegasta ógnunin sem ríkismiðilinn hefur staðið frammi fyrir.  Lögmæti þess að reka ríkismiðils er dregið efa. Spurningin er sú hvort og þá hvað við Íslendingar getum lært af þeim vandræðum sem BBC glímir við. E einhver heldur að ekki sé pottur brotinn hjá Ríkisútvarpinu og að aðeins fréttastofa BBC – fréttastofa sem átti að vera fyrirmynd allra annarra fjölmiðlamiðla – glími við vandamál, lifa menn í meiri sjálfsblekkingu en ég hafði áttað mig á.  
Show more...
1 month ago
27 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Hægri menn standa á krossgötum
Við sem erum hægri menn getum ekki einblínt á ofstæki vinstri manna en látið pólitíska rétthugsun og yfirgang svokallaðra hægri mann óátalin. Barátta okkur fyrir frelsi – málfrelsi – er barátta fyrir frelsi allra ekki aðeins þeirra sem eru okkur þóknanlegir. Að öðrum kosti gerum við okkur seka um það sama og vinstri róttæklingar, sem við höfum með réttu gagnrýnt harðlega. Við eigum ekki að verja þá sem klæðast búningi hægri manna en boða rétttrúnað, þöggun, ýta undir fordóma og sækja vítamín í samsæriskenningar. Tucker Carlson, Candace Owens og Nick Fuentes og fleiri álitsgjafar hafa dregist æ lengra út á jaðarinn með samsæriskenningum, gyðingahatri, árásum á lýðræðisleg gildi og daður við einræðisherra. Þau eru upptekin við að gagnrýna hægri menn en takast á við vinstri sinnaða stjórnmálamenn.  Hægri menn í Bandaríkjunum standa á krossgötum: Taki þeir sér ekki varðstöðu með grónum gildum frelsis og hugsjóna þeirra sem á undan komu, eins Lincolns og Reagans, verða þeir fórnarlömb þeirra sem nærast af tortryggni og samsæriskenningum. Árangur þeirra í kosningum verður þá enn lakari en 4. nóvember síðastliðinn þegar Demókratar völtuðu yfir frambjóðendur Repúblikana í ríkisstjórakosningum í Virginíu og New Jersey og kosningu borgarstjóra New York. 
Show more...
2 months ago
29 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Fyrirgefning og tjáningarfrelsi
Þú þarft að búa yfir einhverjum innri krafti – trú á hið góða – til að tala með þeim hætti sem Erika Kirk gerði í ræðu á minningarathöf um eiginmann hennar Charlie Kirk – aðeins ellefu dögum eftir hann var myrtur. Erika sækir styrkinn í trúnna á Jesús Krist líkt og eiginmaður hennar gerði. Fæst okkar höfum þennan styrk eða þá bjargföstu trú sem gerir okkur kleift að fyrirgefa þeim sem drepur nákominn ættingja, maka eða börn. Sú hætta er raunveruleg að morðið á Kirk hafi djúpstæð neikvæð áhrif á tjáningarfrelsi í Bandaríkjunum – fólk fari að forðast  opinskáar og hreinskiptar umræður – hætti að takast á með orðum í frjálsum rökræðum. Bandaríkjamenn, líkt við hér á Íslandi, hafa gengið út frá því sem sjálfsögðum hlut að ágreiningur sé leystur með rökræðum og í kosningum. Að tap í kosningum sé ekki heimsendir heldur annað tækifæri til að sannfæra aðra sem eru okkur ekki sammála – áður en gengið er næst að kjörborði. Samkvæmt árlegri könnun FIRE á málfrelsi háskóla taldi einn af hverjum fimm nemendum ásættanlegt að nota ofbeldi til að stöðva fyrirlestra sem eru þeim ekki að skapi árið 2020. Árið 2024 var þriðjungur stúdenta þessarar skoðunar – einn af hverjum þremur.
Show more...
3 months ago
16 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Sleggjan notuð á barnafjölskyldur
Kristrún Frostadóttir lofaði fyrir kosningar að nota sleggju til „negla niður þessa vexti“. Loforðið endurspeglast í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem gefin eru fyrirheit um að fyrsta verk stjórnarinnar sé stöðugleiki og lækkun vaxta. Hvorugt hefur gengið eftir. Verðbólgan hefur reynst þrálát og vextir hafa ekki þokast niður. En sleggjan nýtist vel við að berja á barnafjölskyldum með því að afnema samsköttun hjóna.  Afnám samsköttunar mun gera það fjárhagslega erfitt (og jafnvel útilokað) fyrir annað hjóna að vera utan vinnumarkaðar að hluta eða öllu leiti, til að stunda nám, annast ung börn eða sinna langveiku barni eða aldraða foreldra. Innleidd verður alvarleg mismunun og skattbyrði vegna sömu tekna verður misjöfn eftir því hvernig tekjur skiptast á milli hjóna.
Show more...
3 months ago
11 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Kyndilberi vonar og frelsis
Venesúela er í rúst – efnahagslega og pólitískt. Samfélagslegir innviðir hafa verið brotnir niður. Mannréttindi eru fótum troðin og milljónir manna hafa flúið land. Nicolás Maduro, lærisveinn og eftirmaður Chavez á forsetastóli, heldur ótrauður áfram við að breyta auðugasta landi Suður-Ameríku í það fátækasta. Enn eitt draumaríki sósíalismans hefur breyst í martröð – auðlegð hefur orðið að örbirgð alþýðunnar. Í gegnum söguna hafa einstaklingar, karlar og konur, sýnt ótrúlegt hugrekki í baráttunni fyrir frelsi og mannlegri reisn. Václav Havel í Tékklandi stóð upp gegn kommúnistastjórninni og varð síðar leiðtogi lýðræðislegrar endurreisnar landsins. Í Póllandi sameinaði Lech Wałęsa verkafólk undir merkjum Samstöðu og leiddi þjóð sína til sjálfstæðis og frelsis frá ógnarstjórn kommúnista og Sovétríkjanna. Í Rússlandi lagði Alexei Navalní líf sitt í sölurnar með því að afhjúpa spillingu og berjast gegn Pútín. Hann var myrtur með eitri í fangabúðum enda talinn hættulegur stjórnvöldum – var sérstakur þyrnir í augum Pútíns. Í Íran hafa konur eins og Narges Mohammadi neitað að þegja og greitt fyrir það með frelsi og sumar lífi sínu. Og í Venesúela stendur María Corina Machado óbuguð gegn ofríki Maduros.
Show more...
3 months ago
15 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Prófraun ríkisstjórnarinnar
Þegar þing kemur saman 9. september hefst nýr kafli í sögu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Ráðherrar og þingmenn samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin sé verkstjórn, þar sem verkin tali. Ríkisstjórninni hefur ekki enn sem komið er tekist að koma á stöðugleika eða leggja grunn að lækkun vaxta sem áttu að vera hennar fyrsta verk. Markmið um hallalaus fjárlög næst ekki á kjörtímabilinu þrátt fyrir hækkun skatta. Loforð ríkisstjórnarinnar um fjárfestingar í innviðum, ekki síst samgöngum, breytingar á almannatryggingum, aukin framlög til heilbrigðisþjónustunnar, vinna gegn stöðugleika og lækkun vaxta. Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar er að veði en þó sérstaklega trúverðugleiki Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra sem gaf stærri fyrirheit en hún hefur náð að efna, fram að þessu. Þótt ríkisstjórnin standi ágætlega meðal kjósenda og Samfylkingin sérstaklega, er hætta sú að það flæði fljótt undan ef árangur næst ekki á komandi mánuðum.
Show more...
4 months ago
15 minutes

Óli Björn - Alltaf til hægri
Flokkur á útsölu
Stundum er engu líkara en að saga endurtaki sig, með nýjum leikurum en öðrum blæbrigðum. Í mörgu er staða Flokks fólksins sú sama og Vinstri grænna fyrir rúmum einum og hálfum áratug. Með sama hætti og Vinstri grænir hefur Flokkur fólksins selt stefnu sína í Evrópumálum fyrir aðild að ríkisstjórn og ráðherraembætti.  Andstaðan við Bókun 35 er horfin, áralöng baráttan fyrir að draga aðildarumsókn að Evrópusambandinu formlega til baka er kominn niður í skúffu. Og hvað hefur Flokkur fólksins fengið í staðinn. Ekkert. Samstarfsflokkarnir í ríkisstjórn skipulögðu þinghaldið á fyrsta þingvetri ríkisstjórnarinnar með þeim hætti að öll helstu stefnumál Flokks fólksins voru látin mæta afgangi.
Show more...
5 months ago
15 minutes 39 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri
Ríkisstjórn án áttavita
Ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins – hafa frá upphafi haldið því að ríkisstjórnin væri verkstjórn, þar sem verkin tali. Stefnan sé skýr og umboð óumdeilt. Fyrstu þrjár setningar í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar eru skýrar: „Ný ríkisstjórn gengur samstíga til verka. Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Um leið mun ríkisstjórnin rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi.“ Rúmum  sex mánuðum síðar hefur ríkisstjórnin komið litlu í verk. Stöðugleika í efnahagslífinu er ógnað, markmið um hallalaus fjárlög næst ekki á kjörtímabilinu, skattar eru hækkaðir, verðbólga er á uppleið, vextir lækka ekki, og í atvinnulífinu halda menn að sér höndum í fjárfestingum ekki síst í sjávarútvegi og tengdum greinar.  Alþingi er í uppnámi – stjórn- og skipulagsleysi einkennir allt þinghald. Alþingi er líkist fremur æfingabúðum ríkisstjórnarflokkanna í stjórnmálum en löggjafarsamkomu. Þegar þessi þáttur er takinn upp, að morgni 10. júlí, er staðan óbreytt á þingi. Allt í hnút.
Show more...
6 months ago
19 minutes 27 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri
Hvernig lítið furstadæmi kaupir bandarísku valdaelítuna
Donald Trump forseti Bandaríkjanna heimsótti Katar í maí síðastliðnum og átti m.a. fund með Al Thani konungsfjölskyldunni. Þá skoðaði forsetinn Al Udeid herflugstöðina sem er stærsta herstöð Bandaríkjanna á svæðinu. Trump hefur örugglega þakkað fyrir höfðinglega „gjöf": 400 milljóna dollara Boeing 747-8 þotu sem Katar hefur gefið forsetanum, og verður notuð sem Forsetavél - Air Force One. Heimsóknin og flugvélagagjöfin varpa ljósi á þéttriðið net tengsl Katars við bandaríska valdakerfið.  Náið samband Katar og Bandaríkjanna er sérstakt þegar haft er í huga að Katar er jafnframt skjól fyrir samtök eins og Bræðralag múslima, mikilvægur fjárhagslegur bakhjarl Hamas, samverkaríki Írans, athvarf fyrir landflótta stjórnmálaleiðtoga Talíbana, og heimaríki fyrir fjölmiðlaveldi sem breiðir út boðskap íslamista - Al Jazeera — sem nær til 430 milljón manna í yfir 150 löndum. Lykilmeðlimir konungsfjölskyldu Katars hafa opinberlega lýst aðdáun sinni á íslamisma — og Hamas sérstaklega. Umfangsmikil fréttaskýring The Free Press um tengsl Katar og Bandaríkjanna og áhrif smáríkisins í bandarísku samfélagi er hér: https://www.thefp.com/p/how-qatar-bought-america Og svo er það Honestly - hlaðvarpsþáttur Free Press - þar sem er viðtal við þá tvo blaðamenn unnu að rannsóknum að baki fréttaskýringunni:  Spotify https://open.spotify.com/show/0GRPAKeSMASfbQ7VgNwYCR?si=78ce42d1876c4b1f&nd=1&dlsi=17539eb63f8c427e Apple https://podcasts.apple.com/us/podcast/honestly-with-bari-weiss/id1570872415 Og á öllum helstu öðrum hlaðvarpsveitum.
Show more...
7 months ago
17 minutes 41 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri
Ég, blýantur - rökin fyrir frjálsum markaði
Hayek sýndi okkur fram á að upplýsingar í samfélaginu eru alltaf dreifðar – enginn einstaklingur eða stofnun býr yfir allri þeirri þekkingu sem þarf til að taka réttar ákvarðanir í efnahagsmálum. Þekkingin sem einstaklingar búa yfir er oft takmörkuð, brotakennd og jafnvel mótsagnakennd, en samanlagt er þessi dreifða þekking undirstaða skynsamlegra ákvarðana í gegnum frjálst samspil markaðarins. Markaðurinn virkar sem upplýsingakerfi - tryggir flæði upplýsinga. Verð á vöru og þjónustu er uppspretta upplýsinga um skort, eftirspurn og framboð án þess að nokkur hafi heildaryfirsýn. Smásagan Ég blýanturinn eða "I, Pencil", eftir Leonard E. Read, er einföld en áhrifamikil lýsing á undirstöðum frjáls markaðar og mátt dreifðrar þekkingar. Smásagan kom út árið 1958 og af blýanti og útskýrt hið flókna samspil margra án þess að hver og einn hafi heildarskilning eða yfirsýn yfir það sem þarf til að framleiða jafn einfaldan hlut eins og blýant. Ferlið er þó svo flókið að enginn býr yfir nægjanlegri þekkingu, hæfileikum eða aðföngum til að búa til jafn einfaldan og hversdagslegan hlut. Saga blýantsins kennir okkur að virða ósýnilegan en nauðsynlegan vef samstarfs sem hefur gert samfélögum að sækja fra. Ég hvet ykkur til að horfa á nokkurra mínútna myndband sem byggir á smásögunni. Slóðin er hér: https://www.youtube.com/watch?v=IYO3tOqDISE
Show more...
8 months ago
12 minutes 58 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri
Sótt í skúffur Jóhönnu og Steingríms J.
Vinstri ríkisstjórn þriggja flokka undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur minnir æ meira á aðra vinstri stjórn – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013. Þá lögðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon til atlögu við atvinnulífið og millistéttina. Skattar voru hækkaðir og haft í hótunum við undirstöðuatvinnugreinar landsins. Hugmyndafræði vinstri manna hefur því ekkert breyst. Hún byggir á þeirri trú að ríkissjóður sé að „kasta frá sér tekjum“ ef skattar eru ekki hækkaðir. Ekki sé verið að „nýta tekjutækifæri ríkisins“ og ríkissjóður sé að „afsala sér tekjum“ ef skattar og gjöld eru lækkuð.
Show more...
8 months ago
14 minutes 31 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri
Lagt til atlögu við frelsið
Hugmyndafræði Trumps á ekkert skylt við hugsjónir Ronalds Reagans sem var forseti Bandaríkjanna 1980 til 1988. Það er umhugsunarvert að báðir skuli tilheyra Repúblikanaflokknum. Ronald Reagan trúði því að Bandaríkin hefðu ekki aðeins hag af frjálsum viðskiptum heldur bæru siðferðilega skyldu til að efla þau milli landa. Reagan var einn helsti talsmaður frjálsra viðskipta meðal stjórnmálaleiðtoga 20. aldar. Hann trúði því að opið og frjálst hagkerfi væri lykill að hagvexti, friði og framgangi frelsis um allan heim. Á meðan hann gegndi embætti reyndi hann að styðja við alþjóðlega viðskiptastefnu sem byggðist á lækkun tolla og aukinni samvinnu milli þjóða. Hann gagnrýndi verndarstefnu og tolla harðlega sem langtímalausn. Að hans mati gerðu slíkar aðgerðir innlendan iðnað veikari og síður samkeppnishæfan. Tolla- og verndarstefna sem Donald Trump hefur kynnt er hluti af vaxandi þjóðernishyggju víða um heim og gengur þvert á hugmyndir baráttumanna frelsis, s.s. Reagans, Friedmans og Hayeks. Þeirra sýn var skýr og rökræn - sýn sem byggir á þeirri einföldu sannfæringu að opið hagkerfi, þar sem fólk fær að versla frjálst yfir landamæri, gagnist öllum til lengri tíma. Fylgjendur Trumps halda því hins vegar fram að tollastefnan sé hluti af stærri sýn — uppstokkun alþjóðlegra viðskiptareglna og endurheimt efnahagslegs fullveldis. En þegar upp er staðið er hætta sú að stefna Trumps sé lítið annað en atlaga að frelsi, öryggi og hagsæld.
Show more...
9 months ago
25 minutes 48 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri
Grafið undan lífskjörum
Með skipulegum hætti hafa andstæðingar viðskiptafrelsis reynt að grafa undan athafnamönnum með ágætum árangri, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í öðrum greinum. Þeir hafa sáð fræjum tortryggni gagnvart þeim sem stunda atvinnurekstur, gert þá sem hagnast á viðskiptum að skotspæni og táknmyndum hins illa. Skiptir engu hvort um er að ræða dugnaðarforka sem byggt hafa upp glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi eða iðnaðarmenn sem hafa byrjað með tvær hendur tómar en með elju og útsjónarsemi komið á fót traustum og arðsömum fyrirtækjum. Ekki einu sinni litlir sjálfstæðir atvinnurekendur – bakbein frjálsra viðskipta – fá að vera í friði líkt og Samfylkingin hefur sérstaklega hótað. Tilraun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, 2009 til 2013, til að knésetja íslenskan sjávarútveg var þáttur í áralangri baráttu vinstri manna gegn frjálsu viðskiptalífi. Margir atorkusamir atvinnurekendur skildu ekki og skilja ekki enn að þegar búið er að koma böndum á „sægreifana“ kemur röðin næst að þeim. Í barnslegu sakleysi sátu þeir þegjandi hjá og nokkrir glöddust yfir því að nú skyldi útgerðin látin „borga“. Nú ætlar vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja aftur til atlögðu við atvinnulífið. Nú er ferðaþjónustan í skotlínunni ásamt sjávarútvegi. Sú hætta er raunveruleg að dregið verði úr samkeppnishæfni tveggja mikilvægustu útflutningsgreina okkar, sem eru í harðri alþjóðlegri samkeppni, með ofursköttum. Til skamms tíma munu tekjur ríkisins líklega aukast en til lengri tíma lækka vegna minni umsvifa, lakari afkomu og fækkun starfa. Afleiðingin verður lakari lífskjör okkar allra.
Show more...
9 months ago
26 minutes 24 seconds

Óli Björn - Alltaf til hægri