Hlöðver Guðnason byrjaði merkilega fullorðinn í golfi miðað við að hann sé PGA golfkennari og lágforgjafar keppniskylfingur. Hann segir okkur söguna af því hvernig hann byrjaði og hvernig ferlið var að lækka sig niður undir 5 í forgjöf.
Við ræðum námskeið sem hann kennir í Golfstöðinni þar sem blandað er saman golfkennslu og líkamsrækt fyrir 60 ára og eldri.
Í PGA náminu einbeitti Hlöðver sér sérstaklega að þjálfun eldri kylfinga með stoðkerfisvanda og segir okkur aðeins frá lokaverkefninu sem var um það.
Hann sjálfur hefur góða reynslu af líkamsrækt fyrir golfið og hefur með henni haldið sér í góðum kylfuhraða og átti sennilega sitt besta golftímabil í sumar.
Eftirtaldir aðilar styðja við hlaðvarpið:
- Matland
- Hverslun
- Suitup
- Hreysti
Birgir Björnsson er pga kennari, kylfusmiður og allsherjar grúskari.
Í þættinum ræða Biggi keisari, eins og hann er kallaður, heimsókn Bjarna Más til hans í kylfumælingu, hvað kom útúr þeirri mælingu og hvað Biggi gat ráðlagt honum.
Í framhaldi ræða þeir hverjir hafa þörf á kylfumælingum, algengar mýtur í kringum slíkar mælingar og hvaða hluti verið er að hugsa við val á mismunandi kylfum og búnaði.
Þeir ræða stuttlega einnar lengdar kylfur eins og Bryson notar, breytta gráðutölur á járnum í dag, vinsældir trékylfa síðustu ár o.s.frv.
Styrktaraðilar þáttarins eru:
Í þessum þætti fjallar Bjarni Már sjúkraþjálfari- og golfstyrktarþjálfari um grunnatriðin í styrktarþjálfun golfara. Hvernig gagnast styrktarþjálfun golfurum, hvernig eiga golfarar að vera að lyfta öðruvísi en aðrir og svarar nokkrum algengum spurningum sem varðar málið.
Styrktaraðilar þáttarins eru:
Í þessum þætti kemur Grétar Eiríksson PGA kennari og einn af stofnendum Elva golf og segir okkur frá þessu áhugaverða íslenska nýsköpunarfyrritæki. Þeir hafa þróað hárnákvæmt greiningartæki sem greinir hreyfingar kylfinga í öreindir, nánast um leið og slegið er.
Fyrstu básar eru komnir í gagnið og Bjarni Már fór fyrir þáttinn í greiningu hjá Grétari sem sýndi honum græjurnar og greindi sveifluna.
Styrktaraðilar þáttarins eru:
Gestur þáttarins er Ragga Kristins atvinnukylfingur. Hún fer yfir TPI Hreyfigreiningar sem hún hefur farið í, fyrst fyrir tveimur árum og svo sama dag og þátturinn var tekinn. Við ræðum niðurstöðurnar, hvernig hún æfir sig bæði í ræktinni og hvernig hún æfir sig í golfi. Ragga gefur okkur góða innsýn inní hennar tölur, markmið og áherslur í æfingum. Við förum talsvert á dýptina varðandi kylfuhraða, styrktaræfingar ofl.
Í þessum þætti kynnum við hlaðvarpið Golfstöðina. Hvað verður tekið fyrir í framhaldinu, hver er þáttastjórnandinn og við hverju má búast.
Samstarfsaðilar þáttarins eru: